|
Fréttir
 |
Hundasýning
HRFÍ 6. júní 2010
Jared var sýndur í Unghundaflokki, hann fékk Excellent og
meistaraefni, stig til
íslensks meistara, varð Besti hundur tegundar og nr. 4 í tegundahópi
10.
Þetta hafði dómarinn,
Georgious Kostopoulos frá Grikklandi, hafði að segja um Jared :
Masculine. Well
bodied + proportion.
Long head, typical ears + expression.
Good enough angles. Strong bones.
Broad thighs. Short enough loin.
Strong enough topline.
Sound + free movement.
© Mynd :
Linda B. Jónsdóttir
|
Alþjóðleg hundasýning
HRFÍ 28.
febrúar 2010
Brella var sýnd í Opnum flokki, hún fékk Excellent
og Meistaraefni, varð nr. 3 í sínum flokk og 5. Besta tík tegundar með
eftirfarandi umsögn :
"Sound bitch, elegant, feminine. Prefer more width of skull and more
strength in the whole head. Strong topline. Well set tail. A bit soft in coat.
One double dew-claw, the other single. A very good mover from all angles."
Dómari var Espen Engh frá Noregi
 |
 |
| ©
Myndir : Ágúst Ágústsson |
13.10.2009
Í dag er Chisobee
Jared 1 árs!
01.08.2009
Mikið hefur gerst hér í sumar en hér verður einungis minnst á það
helsta..
23. júní sl. sáum við á
eftir honum Braga
okkar en hann var aldrei alveg heilbrigður og við gátum haft hann hér hjá
okkur mikið lengur en nokkurn óraði fyrir í upphafi. Hann var frábær
hundur, mikill og skemmtilegur karakter og kenndi okkur margt, einstakur hundur
í alla staði.
Í lok júní rættist
langþráður draumur þegar Chisobee
Jared kom úr einangrun
en hann er fjórði hundurinn af tegundinni saluki sem fluttur er til Íslands.
Jared og íslensku hundunum semur mjög vel og gaman að kynnast annarri tegund
sem er svo ólík íslenska hundinum en alveg jafn frábær.
4. júlí var erfiður dagur
sem seint gleymist en drottningin á heimilinu, Kersins
Katla, var
bráðkvödd þar sem ég var með hana og dætur hennar þrjár í
göngutúr hér í nágrenninu. Katla skilur eftir sig stórt skarð á
heimilinu sem seint verður fyllt. Hún var mikill persónuleiki og frábær
hundur í alla staði. Katla var ekki nema 7,5 ára gömul, dauði hennar var
því alls ekki tímabær og óskiljanlegur á allan hátt

28.07.2009
Í dag eru 2 ár síðan Br-gotið kom í heiminn, fd. árið 2007.
25.04.2009
Í dag eru 3 ár síðan S-gotið kom í heiminn, fd. árið 2006.
13.04.2009
Reykjadals Staka Sól er 10 ára í dag, fd. 13.04.1999!
Tvær tíkur úr S-gotinu
eru orðnar meistarar!
- DKCH Sunnusteins
Stilla í Danmörku
- FINCH Sunnusteins
Stjarna í Finnlandi

|